12 ágúst 2026

/

Heilbrigðisráðuneytið

Gervigreindarstefna Stafrænnar heilsu

{image.Description}

Ný gervigreindarstefna Stafrænnar heilsu hefur verið birt en þar er afstaða Stafrænnar heilsu til nýtingar gervigreindar í heilbrigðisþjónustu mörkuð og sett fram stefnumið og grunngildi sem sú nýting skal byggjast á.

Stefnan tekur til allrar nýtingar gervigreindar í innri starfsemi Stafrænnar heilsu og til þeirrar þjónustu sem einingin veitir heilbrigðisstofnunum, hvort sem gervigreind kemur við sögu í klínísku starfi, stoðþjónustu, stjórnun eða rannsóknum. Gagnvart öðrum stofnunum er stefnan leiðbeinandi og hver stofnun ákveður hvernig hún er innleidd og staðfærð.

Á vefsvæði Stafrænnar heilsu er Gervigreindarstefnan aðgengileg, ásamt öðrum stefnuskjölum og handbókum á starfssviði hennar.