14 ágúst 2026
/
Innviðaráðuneytið
Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar til að velja úr:
- Miðvikudagur 9. september kl. 16-17:30
- Fimmtudagur 10. september kl. 11-12:30
Þetta er í fjórða sinn sem ráðuneytið stendur fyrir slíkri fræðslu en verkefnið er liður í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2026-2029. Hinsegin fólk þarf að eiga greiða leið að þjónustu í sínu nærumhverfi. Þjónusta og viðmót á að vera laust við fordóma og mismunun en bein og óbein mismunun og útilokun getur stafað af þekkingarskorti þeirra sem þjónustuna veita. Til að bæta stöðuna og draga úr fordómum er mikilvægt að efla þekkingu kjörinna fulltrúa og starfsfólks sem sinnir þjónustu við almenning.
Fræðslan tekur um 1,5 klukkustund og er opin öllum kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga.