14 ágúst 2026
/
Forsætisráðuneytið
Skipun nefndar til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum
Forsætisráðherra hefur skipað í nefnd til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum. Sigríður Hjaltested héraðsdómari er formaður nefndarinnar en auk hennar eru í nefndinni þau Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og Sigurður Örn Hektorsson geðlæknir.
Sigríður er lögfræðingur að mennt. Hún var skipuð héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur árið 2013. Í störfum sínum sem dómari hefur hún komið að fjölbreyttum málaflokkum m.a. þeim er tengjast barnavernd en lengst af með áherslu á sakamál. Áður starfaði Sigríður hjá Fangelsismálastofnun, sem aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og aðstoðarsaksóknari hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá starfaði Sigríður tímabundið á lagaskrifstofu dómsmálaráðuneytisins og sinnti um hríð stundakennslu við HÍ og HR. Sigríður hefur samhliða dómarastörfum kynnt sér sérstaklega bæði hérlendis og erlendis valkosti við refsiákvörðun með áherslu á fyrirbyggjandi áhrif og ungmenni.
Arna Ír er félagsráðgjafi að mennt og hefur frá árinu 1996 starfað að fjölbreyttum verkefnum á málefnasviðum velferðarþjónustu hjá ríki og sveitarfélögum. Hún hefur m.a. starfað sem félagsráðgjafi í Ósló, verið sviðsstjóri á Svæðisskrifstofu fatlaðra, yfirfélagsráðgjafi í samrekinni velferðarþjónustu 7 sveitarfélaga og starfar í dag sem verkefnisstjóri Farsældarráðs Suðurlands. Arna hefur m.a. starfað við almenna félagslega ráðgjöf, ráðgjöf og stuðning við fötluð börn og fjölskyldur, börn með fjölþættan vanda, barnavernd, ráðgjöf við einstaklinga með geðfötlun ásamt því að hafa unnið að stefnumótun í velferðarmálum. Þá sat Arna Ír í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar í 16 ár og því setið í fjölmörgum stjórnsýslunefndum í tengslum við það.
Sigurður Örn lauk læknanámi 1980 og er sérfræðingur í heimilis- geð- og fíknilækningum og hefur m.a. gegnt yfirlæknisstörfum á fíknigeðdeild Landspítala, við geðheilsuteymi fangelsa og hjá embætti landlæknis. Sérsvið hans eru að auki geðlæknisfræðileg samtals- og hópmeðferð með áherslu á samspil geðheilsu og líkamlegra veikinda. Hann hefur áralanga reynslu af samstarfi við dómstóla, lögreglu, fangelsismálayfirvöld og aðrar opinberar stofnanir, meðal annars sem matsmaður, meðdómandi og ráðgefandi sérfræðingur.
Skipan nefndarinnar byggir á lögum sem Alþingi setti í júní sl. Verkefni nefndarinnar er að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina ríkis og sveitarfélaga á einkaheimilum. Tímabilið sem rannsóknin tekur til er frá 27. mars 1947 til 1. júní 2002 en þó er heimilt að fara nær tíma í vissum tilvikum.
Markmið rannsóknarinnar er skv. lögunum þríþætt:
- Að lýsa því kerfi sem var við lýði varðandi vistun barna á einkaheimilum og opinbert eftirlit með henni á því tímabili sem við á.
- Ef tiltekið heimili er tekið til skoðunar skal leitast við að staðreyna, eins og kostur er, hvort börn hafi meðan á vistun stóð búið við aðstæður eða sætt meðferð sem samrýmdist ekki gildandi reglum, viðmiðum eða almennum kröfum um velferð barna á þeim tíma.
- Að kanna hvort annmarkar hafi verið á hvernig vistun var komið á, leyfisveitingum og opinberu eftirliti, eða viðbrögðum við upplýsingum og tilkynningum.
Áætlað er að nefndin starfi í að minnsta kosti þrjú ár og skili ráðherra skriflegri skýrslu um störf sín með rökstuddum niðurstöðum.