15 ágúst 2026

/

Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Brauðtertuveisla á Menningarnótt: 5 metrar af lifandi hefð

{image.Description}

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið býður gestum og gangandi til brauðtertuveislu á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst. Dagskráin hefst kl. 15 í alrýminu á 1. hæð í Reykjastræti 8.

Boðið verður upp á brauðtertu, tónlist og sjónlist, en með dagskránni vill ráðuneytið vekja athygli á íslenskri matarmenningu og þeim lifandi hefðum sem þróast og taka breytingum með samfélaginu. Ekki dugir minna en rúmlega 5 metrar af brauðtertu svo líklega er um lengstu brauðtertu landsins að ræða.

Brauðtertan er nefnilega engin venjuleg terta. Hún hefur átt sinn sess á íslenskum veisluborðum í meira en hálfa öld og fylgt landsmönnum í gegnum ótal tímamót; skírnir, afmæli, brúðkaup, útskriftir og jarðarfarir. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að brauðtertan er skráð sem lifandi hefð hjá Þjóðminjasafni Íslands. Hún byggir á traustum grunni og vísar til fortíðar en býður um leið upp á ríkulegt svigrúm fyrir sköpunargleði og er í sífelldri þróun líkt og vinsældir hennar bera merki um.

Endurreisn brauðtertunnar á Íslandi birtist einnig í því að árlega á degi brauðtertunnar, 13. nóvember, er krýndur Íslandsmeistari í brauðtertugerð. Annað merki um vinsældir hennar er Facebook-hópurinn Brauðtertufélag Erlu og Erlu þar sem meðlimir eru hátt í 22 þúsund talsins.

Samfelld upplifun

Nágrannar ráðuneytisins í Landsbankanum sem er í sömu byggingu, bjóða einnig upp á fjölbreytta dagskrá á Menningarnótt, sem og tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa. Milli kl. 15 og 17 verður hægt að ganga inn í Reykjastræti 8 frá innganginum á móti Hörpu. Á Hörputorgi verður jafnframt fjölbreytt dagskrá og því tilvalið að rölta þaðan yfir í ráðuneytið, bragða á brauðtertu og skoða listasýninguna Brauðtertan lifir. Sýningin byggir á verkum Tanju Levý, sem hefur hannað vörulínu innblásna af íslensku brauðtertunni.

Ljúffengt listform

„Með þessu viljum við sameina matarmenningu, hönnun, myndlist og tónlist, enda fer þetta allt ákaflega vel saman. Brauðtertan er líka sérstök að því leyti að hún hefur ekki aðeins sameinað kynslóðir heldur má líta á hana sem ákveðið listform, líkt og veisluborð víða um land bera glöggt vitni um. Hún er dæmi um lifandi hefð sem tekur stöðugum breytingum og þróast með þjóðinni – hefð sem sameinar, mettar og virkjar sköpunargleðina,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Brauðtertur 

Brauðtertur geta verið hrein listaverk eins og sést glögglega í hópnum Brauðtertufélag Erlu og Erlu á facebook. Meðlimir hópsins eru hátt í 22.000.