17 ágúst 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
67 hefja nám í lögreglufræðum í haust
Alls hefja 67 nemendur nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri í haust, 39 prósent konur og 61 prósent karlar. Meðalaldur er 25,5 ár og um þriðjungur þeirra er starfandi við afleysingastörf hjá lögreglu í sumar.
Þetta kemur fram á vef ríkislögreglustjóra.
Heildarfjöldi samþykktra umsókna í lögreglufræðinámið í ár voru 189 samanborið við 235 gildar umsóknir í fyrra. Af 189 umsækjendum skráðu 181 sig í inntökuprófin en 146 enduðu á að þreyta prófin. Að loknum fyrri hluta inntökuprófanna stóðu 92 umsækjendur eftir sem voru bakgrunnsathugaðir og fóru heilsufarsskoðun.
Síðari hluti inntökuferlisins byggist á viðtali og vegur það einna þyngst í öllu inntökuferlinu ef frá eru taldir útilokandi þættir sem snúa að bakgrunni og heilsufari. Nú þegar síðari hluta inntökuferlisins er lokið liggur fyrir að 67 nemendur hefja nám í haust