17 ágúst 2026

/

Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Fyrirkomulag helsingjaveiða 2026

{image.Description}
Erling Ólafsson
Helsingjar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest veiðitímabil helsingja í ár. Heimilt verður að veiða helsingja á tímabilinu 1.–20. september.

Austur-Grænlandsstofn helsingja, sem íslenski stofninn tilheyrir, hefur rýrnað mikið á allra síðustu árum.

Árið 2025 náðu Ísland og Bretland samkomulagi um að halda veiði úr grænlenska helsingjastofninum í lágmarki vegna stöðu stofnsins og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands um vernd tegundarinnar. Jafnframt var lögð áhersla á að beina veiðum eins og kostur er að þeim hluta stofnsins sem verpir á Íslandi. Markmiðið var að koma til móts við bændur með því að draga úr tjóni á ræktarlandi af völdum helsingja. Til að styðja við það markmið var upphaf veiðitíma um land allt árið 2025 fært fram til 1. september með lokadagsetningu 15. september. Á þeim tíma er almennt talið að helsingjar frá Grænlandi séu ekki enn komnir til landsins og því auknar líkur á að veiðar beinist fyrst og fremst að íslenska varpstofninum.

Á Íslandi hefur varpárangur stofnsins verið góður á undanförnum árum og stofninn sýnt jákvæða þróun. Það hefur styrkt rök fyrir aukinni veiði innan þeirra marka sem samkomulagið setur, jafnframt því að leitast er við að draga úr óánægju bænda vegna ágangs fuglanna.

Ráðherra hefur því fallist á tillögur Náttúruverndarstofnunar um að veiðitímabilið árið 2026 verði lengt um fimm daga, en að áfram verði sölubann á helsingja.

Helsingi heyrir undir AEWA-samninginn sem Ísland er aðili að. Ísland, ásamt Grænlandi, Írska lýðveldinu og Bretlandi, bera ábyrgð á stofni helsingja sem verpir á Austur-Grænlandi og heldur til á Írlandi og Skotlandi yfir veturinn. Ísland er mikilvægur viðkomustaður helsingja á leið þeirra yfir hafið og hluti stofnsins er með varpstöðvar í Skaftafellssýslum.