17 ágúst 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Menningarmiðstöð Hornafjarðar tekur við hlutverki Kvískerjasjóðs
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Logi Einarsson menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Árni M. Mathiesen, formaður Kvískerjasjóðs og Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, undirrituðu viljayfirlýsingu fyrir helgi sem kveður á um að Menningarmiðstöð Hornafjarðar taki við hlutverki Kvískerjasjóðs.
Markmiðið er að tryggja áframhaldandi stuðning við rannsóknir á náttúru, sögu og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu og varðveita og miðla þeirri einstöku þekkingu sem systkinin á Kvískerjum öfluðu, hvert á sínu sviði, og þeirri arfleifð sem þau skildu eftir sig.
Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu árið 2003 til að heiðra framlag Kvískerjasystkina til rannsókna á náttúru, sögu og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu. Sjóðurinn hefur frá stofnun stutt fjölmörg rannsóknar-, skráningar- og miðlunarverkefni á svæðinu.
Viljayfirlýsingin felur í sér sameiginlegan vilja til að ljúka starfsemi Kvískerjasjóðs í núverandi mynd og fela þess í stað Menningarmiðstöð Hornafjarðar að styðja áfram við markmið sjóðsins, meðal annars með rannsóknum, varðveislu, skráningu og miðlun arfleifðar Kvískerja.
Nú þegar öll Kvískerjasystkinin eru fallin frá liggur eftir umfangsmikið safn frumgagna, gripa, ljósmynda og handrita frá Kvískerjum sem þarf að skrá, varðveita, miðla og eftir atvikum vinna frekar úr. Með nýju fyrirkomulagi er stefnt að því að fjármunir sjóðsins nýtist með markvissum og varanlegum hætti til þessara verkefna.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar býr yfir þekkingu, aðstöðu og reynslu á þessu sviði og hefur þegar unnið að skráningu muna frá Kvískerjum. Er hún því vel í stakk búin til að tryggja varðveislu og miðlun, meðal annars með skráningu, fræðslu, sýningum og stafrænu aðgengi.
„Kvískerjasjóður hefur gegnt mikilvægu hlutverki í rúm tuttugu ár. Með breytingunum nú er byggt á þeim góða grunni og um leið skapaður nýr farvegur sem tryggir að fjármunir sjóðsins nýtist með markvissum hætti til að varðveita og miðla þeirri einstöku arfleifð sem Kvískerjasystkin skildu eftir sig. Þannig verður þessi mikilvægi náttúru- og menningararfur aðgengilegri almenningi og komandi kynslóðum,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Viljayfirlýsingin markar upphaf áframhaldandi vinnu við yfirfærsluna til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.