20 ágúst 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Varnaræfingunni Norður-Víkingur hleypt af stokkunum

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ásamt Matthew Whitaker, fastafulltrúa Bandaríkjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu, og Alexus Grynkewich (t.v.), yfirhershöfðingja Atlantshafsbandalagsins.
Varnaræfingunni Norður-Víkingur var formlega hleypt af stokkunum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í vikunni að viðstöddum fjölmörgum innlendum og erlendum gestum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Alexus Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins, sem  jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, fluttu ávörp á opnunarathöfninni. Matthew Whitaker, fastafulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu, var einnig viðstaddur opnunarathöfnina.

„Varnarsamningurinn við Bandaríkin á 75 ára afmæli í ár og það er við hæfi að minnast þessara tímamóta með því að láta hendur standa fram úr ermum og sýna okkar nána samband í verki. Varnarsamningurinn hefur staðist tímans tönn vegna þess að hann hefur þróast til þess að mæta áskorunum hvers tíma. Norður-Víkingur er hluti af þeirri þróun,“ sagði Þorgerður Katrín í ávarpi sínu. „Æfingin fléttar saman meginstoðirnar tvær í vörnum Íslands; varnarsamninginn og aðildina að Atlantshafsbandalaginu. Hún sýnir fram á að skuldbindingar okkar gagnvart hvert öðru eru lifandi, enda byggjast þær á trausti, vináttu, sameiginlegum gildum og hagsmunum.“

Fastafulltrúi Bandaríkjanna gagnvart Atlantshafsbandalaginu, Matthew Whitaker, fundaði í heimsókn sinni til Íslands með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Meðal umræðuefna voru málefni Atlantshafsbandalagsins, þróun mála á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og traust og náið samband Íslands og Bandaríkjanna, en í ár eru 75 ár liðin frá því að tvíhliða varnarsamningur ríkjanna var undirritaður. Einnig var rætt um stöðu mála í Úkraínu og stuðning við áframhaldandi varnarbaráttu. Whitaker heimsótti einnig íslensk fyrirtæki sem bjóða upp á tvínota tækni sem nýtist í öryggis- og varnarmálum.