24 ágúst 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fyrsta raflínunefndin hefur störf

{image.Description}

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað fyrstu raflínunefndina á Íslandi þ.e. raflínunefnd um Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun ráðherra 14. nóvember síðastliðinn.

Nefndin er skipuð í samræmi við ákvæði í skipulagslögum frá árinu 2023 og er tilgangur hennar að brúa ágreining og tryggja að stórframkvæmdir, sem varða mikilvæga þjóðarhagsmuni, geti gengið eftir á málefnalegan og skilvirkan hátt.

Hlutverk raflínunefndar er:

  • Að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag fyrir framkvæmd í flutningskerfi raforku sem nær til tveggja eða fleiri sveitarfélaga.
  • Að veita framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku sem byggjast á samþykktri kerfisáætlun.
  • Að hafa eftirlit með framkvæmdum í flutningskerfi raforku og framkvæmd raflínuskipulags.

Formaður raflínunefndarinnar er Gissur Pétursson en nefndin er einnig skipuð fulltrúum Borgarbyggðar, Húnaþings vestra, Hvalfjarðarsveitar og umhverfis- orku og loftslagsráðuneytis.

Nefndin er skipuð þar til framkvæmd er lokið.