25 ágúst 2026

/

Innviðaráðuneytið

Einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga

{image.Description}
Hari

Fyrr á árinu óskuðu ráðuneytin eftir tillögum hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga. Kallað var eftir ábendingum og úrbótatillögum um verkefni og regluverk sveitarfélaga í því skyni að greina hvort og þá hvar lagðar eru óþarfar eða íþyngjandi kvaðir á sveitarfélög og/eða einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök sem leita þurfa til sveitarfélaga í störfum sínum eða einkalífi. 

Alls bárust rúmlega 100 ábendingar í um 60 innsendum umsögnum. Ábendingarnar voru afar fjölbreyttar og snertu málaflokka níu ráðuneyta. Flestar umsagnir vörðuðu umhverfis- og skipulagsmál enda stór málaflokkur í starfsemi sveitarfélaganna. 

Ráðuneytin eru langt komin að fara yfir tillögurnar og helsta niðurstaðan eftir fyrstu yfirferð ráðuneytanna er sú að vel flestar ábendingarnar voru málefnalegar og nytsamlegar verða teknar til frekari skoðunar og unnar áfram næstu misseri. Tillögur verða kynntar nánar þegar þær koma til framkvæmda en jafnframt er hægt að nálgast upplýsingar hjá viðkomandi ráðuneytum.

Innviðaráðuneytið hefur lokið yfirferð yfir ábendingar um málaflokka ráðuneytisins og vörðuðu þær m.a. innheimtu gatnagerðargjalda, uppfærslu á tekjustofnalögum og heimildir fyrirtækja sveitarfélaga til að reikna arðsemi á eigið fé. Margar af þeim ábendingum sem bárust hafa þegar verið til skoðunar innan ráðuneytisins og verða hafðar til hliðsjónar s.s. við mótun reglna um atvinnuþátttöku sveitarfélaga.

Rétt er að hafa það í huga að einföldun regluverks er alltaf með þeim fyrirvara að ekki verði gengið á rétt íbúa til þjónustu og mun úrvinnsla og framkvæmd tillagna taka mið af því. Markmiðið er því öðru fremur að sveitarfélög fái aukinn sveigjanleika til að sinna betur þeim lögbundnu verkefnum og þjónustu sem þeim ber að veita. Afraksturinn verði einfaldari stjórnsýsla, betri þjónusta og ánægðari íbúar.

Verkefnið er í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar um hagræðingu innan stjórnsýslunnar og að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.