26 ágúst 2026

/

Innviðaráðuneytið

Starfshópur um ferjuáætlun hefur hafið störf

{image.Description}
Baldur á siglingu

Starfshópur um mótun nýrrar ferjuáætlunar sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði síðsumars hefur nú hafið störf. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. desember nk.

Hópnum er ætlað að greina stöðu ferjusiglinga og móta heildstæða stefnu ásamt aðgerðaáætlun um öruggar og áreiðanlegar ferjusamgöngur á Íslandi. Stefnt er að því að í aðgerðaáætluninni verði m.a. sett fram framkvæmda- og kostnaðaráætlun um endurnýjun ferjuflotans. Starfshópurinn var skipaður í samræmi við aðgerð 1.11 í þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040. 

„Það er brýn nauðsyn að móta fyrstu heildstæðu stefnu til framtíðar um ferjusamgöngur á Íslandi. Mikilvægt er að greina þarfir fyrir slíkar samgöngur og hvernig best fer á því að skipuleggja þær með tilliti til samgönguþarfa, öryggis og orkuskipta,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Starfshópurinn er þannig er þannig skipuð:

  • Sóley Ragnarsdóttir, formaður, án tilnefningar,
  • Hilmar Stefánsson, tilnefndur af Vegagerðinni
  • Jón Gunnar Jónsson, tilnefndur af Samgöngustofu
  • Sunna Þórðardóttir, tilnefnd af atvinnuvegaráðuneytinu

Lögð er sérstök áhersla að starfshópurinn eigi gott samráð við hagaðila. Af þeim sökum var óskað sérstaklega eftir tengiliðum frá sveitarfélögum sem treysta á ferjusamgöngur. Starfshópurinn mun eiga samráð við tengiliðina og gefa þeim kost á að veita umsögn um drög að niðurstöðum, áður en þeim er endanlega skilað til ráðherra. 

Ekki er greitt sérstaklega fyrir störf í starfshópnum.