27 ágúst 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Reglugerð um símafrí í grunnskólum sett – skýr rammi um námsfrið og vellíðan

{image.Description}

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Með reglugerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símafrí í grunnskólum landsins. Markmiðið er að skapa aukinn námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag.

„Börnin okkar eiga rétt á því að skólinn sé staður þar sem þau geta einbeitt sér, talað saman, leikið sér og notið samveru án stöðugs áreitis frá símanum. Símafrí snýst ekki um að snúa baki við tækninni heldur að setja velferð barnanna í fyrsta sæti. Við fullorðna fólkið berum ábyrgð á að skapa þeim þennan frið og kenna þeim jafnframt að nota tæknina af ábyrgð,“ segir Inga Sæland.

Setning reglugerðarinnar er næsta skref eftir að Alþingi samþykkti breytingu á lögum um grunnskóla fyrr á árinu. Drög að reglugerðinni voru kynnt til umsagnar í júní og hefur mennta- og barnamálaráðuneytið lokið yfirferð á endurgjöf úr samráðsferlinu.

Skýr meginregla og nauðsynlegar undanþágur

Samkvæmt reglugerðinni er notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis óheimil á skólatíma. Tækin skulu ekki vera aðgengileg nemendum á skólatíma og skulu geymd samkvæmt fyrirkomulagi sem hver skóli eða frístundaheimili ákveður. Hver skóli mótar nánari reglur um geymslu, aðgang að tækjum og afhendingu þeirra. Skulu reglurnar kynntar bæði fyrir foreldrum og nemendum.

Reglurnar taka til alls skólatímans, þar á meðal frímínútna, matarhléa, vettvangsferða og ferða á vegum skólans. Þær ná einnig til frístundaheimila og tómstunda- og félagsstarfs sem er hluti af daglegu skólastarfi.

Símar og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla verða áfram notuð þegar það þjónar kennslufræðilegum tilgangi eða stuðningsþörfum nemenda. Reglugerðin er því ekki bann við stafrænni tækni í skólastarfi heldur skýr rammi um hvenær og hvernig hún er notuð.

Gert er ráð fyrir undanþágum þegar tæki er nauðsynlegt vegna stuðningsþarfa nemenda, t.d. vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa eða námsþarfa, og þegar tæki er notað sem hjálpar- eða stuðningstæki við t.d. tjáskipti, öryggi eða skipulag. Einnig verður unnt að veita tímabundnar og rökstuddar undanþágur þegar hagsmunir nemenda mæla með því.

Innleiðing

Reglugerðin verður birt á næstu dögum í Stjórnartíðindum og öðlast þá gildi.

Skólastjórar tryggja innleiðingu reglugerðarinnar í skólum og forstöðumenn frístundaheimila á sínum vettvangi. Leitast skal við að ná sem víðtækastri sátt milli aðila skólasamfélagsins um innleiðinguna. Nemendum skal veitt tækifæri til að taka þátt í innleiðingunni og þegar kemur að því að meta áhrif á nemendur og hvernig megi koma til móts við þá. Taka skal réttmætt tillit til sjónarmiða þeirra í samræmi við aldur og þroska.

Samhliða símafríi skulu skólar huga að því hvernig koma megi til móts við nemendur, meðal annars með fjölbreyttri afþreyingu, leik, hreyfingu og samveru í frímínútum.

Ráðuneytið mun gefa út leiðbeiningar um framkvæmd reglugerðarinnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og skólasamfélagið. Áhrif innleiðingarinnar verða metin sem hluti af innra mati skólanna og reglugerðin endurskoðuð m.a. með hliðsjón af reynslu og þróun rannsókna og þekkingar. Ráðuneytið mun fylgja framkvæmd reglugerðarinnar eftir frá 1. janúar 2027.