Hyggst breyta lögum til að auka jafnræði í þjónustu og styrkja réttindi fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp sem felur í sér breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Frumvarpinu er ætlað að ná fram fjórum meginmarkmiðum:
1. Auka gæði, jafnræði og stöðugleika í þjónustu
Lagt er til að lögfest verði 6.000 íbúa lágmarksstærð þjónustusvæða sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk til að tryggja faglega og fjárhagslega burði minni sveitarfélaga til að veita sérhæfða þjónustu. Þá verði lögfest samræmt, staðlað matstæki við mat á umfangi stuðningsþarfa einstaklinga þannig að sama matstæki verði notað við mat á stuðningsþörf á landsvísu. Meginmarkmið breytingarinnar er að tryggja jafnræði í þjónustu við fatlað fólk.
2. Styrkja réttindi og sjálfsákvörðunarrétt í húsnæðismálum
Lagt er til að kveðið verði á um skýrari reglur um félagslegt íbúðarhúsnæði og að sjálfsákvörðunarréttur notenda um búsetuform sé virtur. Jafnframt er lagt til að lögfestur verði forgangur á biðlistum eftir húsnæði fyrir einstaklinga sem lokið hafa öryggisráðstöfunum á grundvelli dóms.
3. Efla réttindi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra
Sjálfstæð réttindi fatlaðra barna eru fest í sessi með áherslu á samfellu og þjónustu í nærumhverfi fjölskyldunnar. Þá er lagt til að lögfest verði bann við gjaldtöku fyrir sértæka frístundaþjónustu og að börn og ungmenni frá 5. bekk og allt til loka framhaldsskóla hafi val á milli þess að sækja almennt tómstunda- og félagsstarf sveitarfélaga með stuðningi eða sértæka frístundaþjónustu.
4. Bæta stjórnsýslu og tryggja virkt samráð
Lögð er áhersla á nútímalega og skilvirka stjórnsýslu með skýrum ákvæðum um meðferð upplýsinga og með því að samræma hæfisskilyrði starfsfólks sem þjónustar fatlað fólk og börn. Jafnframt er fest í lög skylda til virks og formlegs samráðs við notendur og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
Frestur til 20. október
Tilefni frumvarpsins má rekja til umfangsmikillar greiningar- og stefnumótunarvinnu sem unnin hefur verið á undanförnum árum í samstarfi ríkis, sveitarfélaga, notenda og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks.
Drög að frumvarpinu eru nú aðgengileg í samráðsgátt stjórnvalda þar sem öllum gefst kostur á að senda inn umsagnir. Frestur til að senda inn umsögn er til 20. október nk.