03 september 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Almannatryggingar í 90 ár: Opin ráðstefna í Hörpu
Níutíu ára sögu almannatrygginga á Íslandi verður fagnað með opinni ráðstefnu í Hörpu þann 30. september nk. Árið 1936 tóku lög um alþýðutryggingar gildi og sama ár var Tryggingastofnun ríkisins sett á laggirnar. Þar með var grunnur lagður að því almannatryggingakerfi sem landsmenn búa við í dag. Með tímanum varð Tryggingastofnun ríkisins síðan að Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og Vinnumálastofnun.
Saga, þróun og framtíð kerfisins
Á ráðstefnunni verður fjallað um almannatryggingar á Íslandi og farið yfir sögu, þróun og framtíð kerfisins. Þá verður fjallað um samspil almannatrygginga við atvinnulíf, stéttarfélög, lífeyrissjóði og rannsóknir á sviðinu. Á ráðstefnunni verða bæði innlendir og erlendir gestir og meðal annars flutt erindi frá OECD, ISSA alþjóðasamtökum almannatryggingastofnana og félags- og fjölskylduráðuneyti Möltu. Í pallborði verða einnig forstjórar almannatryggingastofnana á Norðurlöndunum.
Að ráðstefnunni standa Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun.
Ráðstefnan er öllum opin en skráning er nauðsynleg og viðburðinum verður ekki streymt.
Dagskrá
Kl. 9.00 - Setning
Félags- og húsnæðismálaráðherra flytur ávarp.
Heilbrigðisráðherra flytur ávarp.
Kl. 9.15 - Stjórnsýslan og hagaðilar
Forstjórar Tryggingastofnunar, Sjúkratrygginga Íslands og Vinnumálastofnunar flytja erindi um helstu áskoranir og tækifæri á sínu málefnasviði.
Pallborðsumræður með hagaðilum þar sem rætt verður um samstarf, þjónustu við notendur og framtíðarsýn velferðarkerfisins.
Kl. 10.45 – Kaffihlé
Kl. 11.15 – Aðkoma og samspil atvinnulífs, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og fræðasamfélags
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Landssamtaka lífeyrissjóða, ASÍ og Háskóla Íslands flytja erindi.
Kl. 12.15 - Hádegisverður
Kl. 13.00 - Staðan í alþjóðlegu samhengi – Reynsla, þekking og framtíð almannatrygginga
OECD: The future of social protection and social policy. ISSA: Social security, navigating change for success. Ministry for social policy and the family, Malta: Development of social insurance in Malta, evolution to present day, and perspectives on the future of social protection and social policy.
Kl. 14.30 – Kaffihlé
Kl. 14.40 – Pallborðsumræður með fulltrúum norrænna almannatryggingastofnana
Ráðstefnulok og samantekt.
Kl 16 – Léttar veitingar og samverustund
Athugið að eftir kl. 13.00 fer dagskráin fram á ensku.
- Skráning á ráðstefnuna
- Skráningu lýkur 20. september.
Sjá einnig:
- Níutíu ár af sameiginlegu öryggi – grein eftir félags- og húsnæðismálaráðherra
- Almannatryggingar í 90 ár – grein eftir forstjóra Tryggingastofnunar
- Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum – grein eftir forstjóra Sjúkratrygginga Íslands