04 september 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Anna Lilja og Sæunn settar í embætti sýslumanns
Anna Lilja Ragnarsdóttir hefur verið sett sem sýslumaður á Suðurlandi og Sæunn Magnúsdóttir sett sem sýslumaður í Vestmannaeyjum frá og með 22. ágúst 2026.
Setningar Önnu Lilju og Sæunnar gilda til 31. desember 2026. Þær taka mið af þeim breytingum sem fram undan eru og er ætlað að tryggja stöðugleika og samfellu í stjórnun og starfsemi embættanna tveggja fram að 1. janúar 2027 þegar sýslumannsembættin sameinast í eitt embætti.
Kristín Þórðardóttir skipuð í nýtt embætti sýslumanns
Kristín Þórðardóttir, sem áður gegndi embætti sýslumanns á Suðurlandi og setts sýslumanns í Vestmannaeyjum, var nýverið skipuð sýslumaður nýs sameinaðs embættis og tók við því embætti 21. ágúst síðastliðinn.
Sameining sýslumannsembættanna er umfangsmikil stjórnsýslubreyting. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að undirbúningi hennar í dómsmálaráðuneytinu í nánu samstarfi við sýslumannsembættin um land allt til að tryggja vandaða og farsæla yfirfærslu yfir í sameinaða embættið.