Bréf utanríkisráðherra til ESB vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendi í dag bréf til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, sem fer með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins (ESB), vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland skyldi hefja á ný viðræður um aðild að ESB, sem fram fór 29. ágúst síðastliðinn.
Í bréfinu er greint frá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og því að ríkisstjórnin hafi ekki í hyggju að hefja aðildarviðræður á ný. Lögð er áhersla á að enda þótt niðurstaðan hafi verið þessi, haldi náið samstarf Íslands og ESB áfram, sem hvíli á traustum grunni.
Sérstaklega er fjallað um mikilvægi EES-samningsins, sameiginlegar áskoranir og bætta framkvæmd innan samstarfsins. Enn fremur lýsti utanríkisráðherra vilja til að styrkja samstarf Íslands og ESB á öðrum sviðum, svo sem á sviði öryggis- og varnarmála, norðurslóða og í málefnum hafsins. Þá var stuðningur Íslands við varnarbaráttu Úkraínu áréttaður.