23. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 23. október 2026

Heil og sæl,

Þorgerður Katrín Gunnarsdótttir, utanríkisráðherra, undirritaði í vikunni fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna og Víetnam fyrir Íslands hönd í Hanoi, höfuðborg Víetnams. Víetnam er 100 milljón manna markaður, hvorki meira né minna, og bætir samningurinn markaðsaðgang fyrir íslenskar vörur og þjónustu á þarlendum markaði, skapar fyrirsjáanlegri viðskiptaskilyrði og styrkir fjárfestingartengsl þeirra sem aðild eiga að samningnum. Vöruútflutningur Íslands til Víetnams nam 452 milljónum króna árið 2025 og jókst um 40% frá fyrra ári. Sjávarafurðir voru 93% útflutningsins og makríll stærsti einstaki útflutningsliðurinn.

Þorgerður Katrín skipaði nýverið spretthóp um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum sem ætlað er að greina stöðu Íslands í alþjóðaviðskiptakerfinu og þá þróun sem hefur orðið innan þess á undanförnum misserum. Hópnum er falið að greina tækifæri og áskoranir út frá hagsmunum ÍSlands og kortleggja viðskiptatækifæri á nær- og fjærmörkuðum. Spretthópurinn fundaði í fyrsta sinn í utanríkisráðuneytinu í vikunni og hópurinn er skipaður forystufólki úr atvinnulífinu, þeim Bjarna Benediktssyni, sem jafnframt er formaður hópsins, Hrund Rudolfsdóttur og Sigurði Hannessyni. Þá eiga einnig sæti kollegar okkar úr utanríkisráðuneytinu, Högni S. Kristjánsson, sendiherra á viðskiptaskrifstofu, og Rún Ingvarsdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra.

Berlín og Helsinki

Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú og rithöfundur, var á ferð og flugi í vikunni og heiðraði Berlínarbúa og Heilsinkibúa með nærveru sinni. Í Berlín bók Elizu, Diplómati deyr, fæst nú í þýskri þýðingu og í tilefni þess var haldinn málfundur í samstarfi við kanadíska sendiráðið þar sem áskoranir í aljóðasamskiptum, staða Atlantshafstengslanna, og jafnréttismál voru rædd.

Í Helsinki var kvensendiherrum og finnskum kvenskörungum boðið á umræðufund með Elizu um jafnréttismál.

Freetown

Sendiráð Íslands tók þátt í lokaviðburði landsþings stúlkna í Síerra Leóne á vegum GADNet-samtakanna og þar flutti fulltrúi sendiráðsins okkar ávarp og áréttaði skuldbindingu Íslands til að berjast gegn kynbundnu ofbeldi, limlestingum á kynfærum kvenna og stúlkna og öðrum skaðlegum siðum. Sendiráðið studdi einnig viðburð í tilefni alþjóðlegum degi stúlkubarnsins.

Svo er vert að vekja athygli á flottu myndbandi sem birt var í tilefni alþjóðlega matvæladagsins um þróunarsamvinnuverkefni í Síerra Leóne um heimaræktaðar skólamáltíðir.

Kaupmannahöfn

Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, hélt erindi á viðburði á vegum Norræna félagsins í Danmörku um samband Íslands og Evrópu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Kampakátir menntaskólanemar úr Menntaskólanum í Kópavogi heimsóttu sendiráðið ásamt kennurum. 
https://www.facebook.com/IcelandinDK/posts/pfbid02P4P2aoAwnCLJV2JF4SBZ9Hwe5R3xqsBFks4aiFNgAhhLpaSAZrN8uVBSpCTNFjh2l

Lilongwe

Victoria og Talandira frá Ascent Soccer-fótboltaliðinu heimsóttu sendiráðið okkar í Lilongwe og héldu kynningu um þátttöku Ascent Soccer-liðsins í ReyCup keppninni í Reykjavík í júlí þar sem liðsmenn Ascent soccer kepptu við Stjörnuna, Þrótt og Grindavík/Njarðvík.

Madríd

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra okkar í Madríd, ræddi við gesti á fundarröð spænskra og íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja sem haldin var í Madríd og Bilbao í vikunni. Fulltrúar frá meira en 40 spænskum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og 10 íslenskum fyrirtækjum tóku þátt í fundarröðinni.

Nýja-Delí

Sendiráðið okkar í Nýju-Delí stóð fyrir sýningu á jafnréttismyndinni Dagurinn sem Ísland stöðvaðist í samsatrfi við samtaka karla gegn kynbundnu ofbeldi (MAVA - Men Against Violence and Abuse).

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra okkar í Kanada, fundaði með Julie Dzerowicz, þingkonu og formanni þingmannafélags um NATO samstarf, aukið samstarf Íslands og Kanada í öryggis- og varnarmálum.

Oslo

Sendiráðið okkar tók þátt í Nýsköpunarvikunni í Osló (e. Oslo Innovation Week) og stóð fyrir viðburðinum "From the Saga Nation 2.0: Icelandic footprints in Norway" á miðvikudaginn þar sem fulltrúar úr íslensku atvinnulífi héldu kynningar.

París

Fulltrúar úr sendiráðinu okkar í París sóttu Alþjóðlegu matvælasýninguna SIAL, sem haldin er annað hvert ár í París, og ræddu við fulltrúa íslenskra fyrirtækja og aðra gesti á sýningunni.

Róm

Sendiráðsteymið okkar í Róm tók þátt í listahátíðinni Volcanic Attitude þar sem þátttakendur fóru í rannsóknar- og upplifunarleiðangur á eldvirk svæði á Ítalíu. Á listahátíðinni voru að sjálfsögðu verk/sýningar eftir íslenskt listafólk!

Tókýó

Það er gaman að segja frá því að Reykjavíkurborg og japanska borgin Tama undirrituðu samstarfssamning nýverið og eru systurborgir! Samningurinn styrkir tengsl borganna tveggja og íbúa þeirra og gerir m.a. auðveldara fyrir að skipuleggja skólasamstarf, skiptinám, og menningarsamstarf.

Varsjá

Ragnheiður Kolsöe, staðgengill sendiherra Íslands í Varsjá, var fulltrúi íslenska sendiráðsins á málstofu á vegum kanadíska sendiráðsins í Varsjá um samstarf á norðurslóðum.