08 september 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta afgreitt úr ríkisstjórn

{image.Description}

Ríkisstjórnin afgreiddi á fundi sínum í morgun frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga vegna tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta. Frumvarpið er endurflutt frá síðasta þingi. Það á að tryggja að íslensk löggjöf sé í samræmi við framkvæmd annarra Evrópuríkja, einkum Norðurlandanna, um hvað taki við þegar tímabundna verndin rennur sitt skeið.

Rúmlega sex þúsund frá Úkraínu fengið tímabundna vernd

Á frumvarpinu hafa verið gerðar nokkrar breytingar sem taka mið af ákvörðun Evrópusambandsins um breytt gildissvið og skilyrði tímabundinnar verndar vegna árásarstríðs Rússlands í Úkraínu. Íslensk stjórnvöld hafa frá upphafi miðað við að framkvæmd vegna tímabundinnar verndar hér á landi sé í samræmi við ákvarðanir Evrópusambandsins og framkvæmd í nágrannaríkjum.

Um sex þúsund einstaklingar frá Úkraínu hafa fengið tímabundna vernd hér á landi frá því innrásarstríð Rússlands hófst fyrir rúmlega fjórum árum. Mikilvægt þykir að Evrópa sé samstíga þegar kemur að málefnum Úkraínubúa.

Langflestar umsóknir um alþjóðlega vernd frá Úkraínu

Ráð Evrópusambandsins ákvað í júlí síðastliðnum að framlengja tímabundna vernd vegna fólks á flótta frá Úkraínu til mars 2028. Samkvæmt gildandi íslenskum lögum getur tímabundin vernd hins vegar að hámarki gilt í fimm ár frá því að einstaklingur fær slíkt leyfi fyrst. Með frumvarpinu er því lagt til að lögbundinn hámarkstími tímabundinnar verndar verði lengdur úr fimm árum í sex.

Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að sérstök heimild í íslenskum lögum til að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að lokinni tímabundinni vernd falli brott. Breytingunni er ætlað að undirstrika tímabundið eðli verndar vegna fjöldaflótta og tryggja að ekki sé ákveðið fyrir fram í lögum hvaða réttarstaða taki við þegar tímabundinni vernd lýkur.

Breytt meðferð tekur aðeins til nýrra umsókna

Samhliða þeirri þróun sem orðið hefur á regluverki Evrópusambandsins hefur framkvæmd 44. gr. laga um útlendinga hér á landi verið uppfærð. Í ágúst sl. breytti dómsmálaráðherra leiðbeiningum um meðferð nýrra umsókna um tímabundna vernd vegna fjöldaflótta. Samkvæmt uppfærðum leiðbeiningum verður tímabundin vernd almennt ekki veitt einstaklingi sem þegar hefur gilt dvalarleyfi á sama eða sambærilegum grundvelli í öðru ríki Evrópusambandsins, Danmörku eða öðru samstarfsríki Schengen.

Við meðferð nýrra umsókna verður einnig litið til þess hvort umsækjanda hafi verið heimilt að yfirgefa Úkraínu með hliðsjón af skyldum gagnvart her landsins samkvæmt úkraínskum lögum. Þetta er í samræmi við framkvæmd í öllum Schengen-ríkjum og vilja úkraínskra stjórnvalda. Þá hefur sendiherra Úkraínu óskað sérstaklega eftir þessu á tveimur fundum sínum með dómsmálaráðherra.

Breytingarnar taka aðeins til nýrra umsókna og hafa ekki áhrif á réttarstöðu þeirra sem þegar njóta tímabundinnar verndar hér á landi. Þær hafa jafnframt ekki áhrif á rétt einstaklinga til að sækja um alþjóðlega vernd samkvæmt lögum um útlendinga.