02 september 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi birtar

{image.Description}

Dómsmálaráðuneytið birti í dag í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp þar sem boðaðar eru hertar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Þetta er í fyrsta skipti frá því að ákvæðið um skipulagða brotastarfsemi var lögfest að ráðist er í jafn markvissar breytingar.

Frumvarpið kveður á um alls 12 breytingar á refsilöggjöf, réttarfarsreglum og lögreglulögum. Allar hafa þær það að markmiði að efla baráttuna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Refsingar verða þyngdar, heimildir lögreglu rýmkaðar og stjórnvöldum gert betur kleift að leggja hald á ólögmætan ávinning sem er hjartað í skipulagðri brotastarfsemi.

 

„Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við öryggi okkar allra og með þessu frumvarpi stígum við markviss skref til að taka á þessum hópum af meiri þunga. Við herðum refsingar, styrkjum heimildir lögreglu og gerum yfirvöldum kleift að ráðast að hagnaðinum sem drífur starfsemina áfram. Þannig veikjum við fjárhagslegan grundvöll glæpahópanna og getu þeirra til að vaxa og festa sig í sessi í íslensku samfélagi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Umfang brotastarfsemi aukist

Samkvæmt skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá því í nóvember eru um tuttugu skipulagðir brotahópar starfandi hér á landi. Þeir eru misskipulagðir og misfjölmennir en allir með það markmið að hagnast á afbrotum. Umfang starfseminnar hefur aukist á undanförnum árum og hún tekið á sig flóknari og alvarlegri mynd með átökum milli hópa og ofbeldis- og vopnalagabrotum

Helstu breytingarnar í frumvarpinu eru:

  • Skipulögð brotastarfsemi verður skilgreind betur og hugtakið víkkað út í takt við breytta tíma.
  • Hámarksrefsing fyrir þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi verður þyngd úr fjórum árum í átta.
  • Refsingar verða hertar ef börn eða ungmenni eru hagnýtt til að fremja alvarleg brot
  • Heimild til að halda sakborningum í gæsluvarðhaldi í flóknum og umfangsmiklum sakamálum verður lengd úr 12 vikum í 6 mánuði
  • Lögreglu verður gert kleift að ráðast í tilteknar rannsóknaraðgerðir áður en dómsúrskurður liggur fyrir.
  • Leyfilegt verður að gera verðmæti upptæk án sakfellingar fyrir tiltekið brot ef ætla má að verðmætin séu ágóði af refsiverðri háttsemi

Frumvarpið um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi er eitt þeirra sem lagt verður fram á komandi þingvetri sem ætlað er að bregðast við þeirri ógn sem íslensku samfélagi stafar af skipulagðri brotastarfsemi.