08 september 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ísland tekur þátt í sameiginlegri yfirlýsingu um tveggja ríkja lausnina

{image.Description}

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er meðal tólf utanríkisráðherra sem gefið hafa út sameiginlega yfirlýsingu er varðar áform um upptöku viðskiptaþvingana eða annarra aðgerða vegna ólöglegra landtökubyggða Ísraela í Palestínu sem grafi undan tveggja ríkja lausninni svokölluðu.

Í yfirlýsingunni er áréttaður stuðningur ríkjanna við tveggja ríkja lausnina og mikilvægi þess að koma á varanlegum og réttlátum friði. Skorað er á Ísraelsstjórn að láta tafarlaust af útþenslu landtökubyggða í Palestínu, að tryggja að landtökufólk verði dregið til ábyrgðar vegna ofbeldisverka og að ásakanir í garð ísraelskra hermanna verði rannsakaðar.

Í yfirlýsingunni viðurkenna ríkin jafnframt lögmæta öryggishagsmuni Ísrael og ítreka fordæmingu sína á hryðjuverkaárás Hamas þann 7. október árið 2023. Árásin hafi verið sú blóðugasta gagnvart samfélagi gyðinga síðan í helförinni, og taka verði á gyðingahatri hvar sem það fyrirfinnst.

Rikin sem taka undir yfirlýsinguna auk Íslands eru Bretland, Danmörk, Finnland, Frakkland, Írland, Kanada, Noregur, Pólland, Portúgal, Spánn og Svíþjóð.