01 september 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

{image.Description}
iStock/anusorn nakdee

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. september. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 89 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 7.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 439 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 270 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 7.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 89.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 17.
  • Ekkert sölutilboð var yfir jafnvægisverði.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 379.072 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 3.985.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 379.072 lítrar að andvirði 102.349.440,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 7 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 72 talsins og fá 11% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Af kauptilboðum eru 7 sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.