04 september 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Ráðherra fundaði með Norræna blaðamannasambandinu
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna, Logi Einarsson, fundaði í gærmorgun með forystunefnd Norræna blaðamannasambandsins. Nefndin er stödd hér á landi í tengslum við formennsku Blaðamannafélags Íslands í sambandinu.
Á fundinum fór ráðherra yfir krefjandi stöðu fjölmiðla og helstu áherslur ríkisstjórnarinnar í málaflokknum. Rætt var um sameiginlegar áskoranir fjölmiðla á Norðurlöndum. Fundargestir spurðu meðal annars hvað stjórnvöld hygðust gera til að styðja við nýsköpun í fjölmiðlum og hvert mat ráðherra væri á mikilvægi fjölmiðla fyrir öryggi og áfallaþol samfélaga.
Greindi ràðherra frá því að í aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla, sem kynnt var í desember síðastliðnum, væru tæplega tuttugu aðgerðir sem miðuðu að því að efla og styrkja rekstur og umhverfi fjölmiðla.
Margar þeirra eru þegar komnar til framkvæmda en vinna við aðrar er langt komin. Endurskoðað stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla var samþykkt á Alþingi í vor og verður styrkjum til fjölmiðla úthlutað síðar á árinu.
Nýjar aðgerðir langt komnar
Á meðal nýjunga sem kynntar voru í fyrrnefndri aðgerðaáætlun og komu til umræðu á fundinum í gær er viðbótarstuðningur við einkarekna fjölmiðla sem sinna almennri fréttaþjónustu í almannaþágu um allt land og uppfylla sértæk skilyrði, meðal annars um mönnun ritstjórnar og viðbragðsgetu. Nýr nýsköpunar- og þróunarsjóður fyrir einkarekna fjölmiðla er vel á veg kominn og verður auglýst eftir umsóknum í sjóðinn síðar á árinu.
Ráðherra benti á að þótt fjármagnið væri takmarkað skipti mestu máli að stíga fyrsta skrefið, enda væru tækifæri til nýsköpunar og þróunar í fjölmiðlum fjölmörg.
Aðrar aðgerðir verða kynntar fljótlega, þar á meðal frumvarp um breytta tekjuöflun RÚV. Frumvarpinu er ætlað að takmarka starfsemi RÚV á auglýsingamarkaði og tengist það áformum um aukin fjárframlög til einkarekinna fjölmiðla.
Samstaða og sterkari heild
Einnig var rætt um mikilvægi frjálsra og sjálfstæðra fjölmiðla og var ráðherra spurður hvort samstaða ríkti um það innan ríkisstjórnarinnar.
„Við erum sammála um að standa þurfi vörð um fjölmiðla. Á Íslandi hefur ríkisstjórnin breytt nálgun sinni í fjölmiðlamálum. Við lítum á öfluga og sjálfstæða blaðamennsku sem hluta af grunninnviðum lýðræðisins. Hún er mikilvæg fyrir traust almennings, íslenska tungu og menningu og viðnámsþrótt samfélagsins,“ sagði Logi.
Hann bætti við að jafnvel þau gildi sem fólk teldi sjálfsögð krefðust stöðugrar ræktar og baráttu.
„Það á meðal annars við um menningu og listir, sem eru órjúfanlegur hluti þess að vera manneskja. Við verðum stöðugt að standa vörð um þessi gildi – og því ætlum við að halda áfram.“
Logi sagði jafnframt mikilvægt að líta á fjölmiðlamarkaðinn sem eina heild – samtengt vistkerfi. Meginspurningin væri ekki hvort efla ætti fjölmiðla í almannaþágu eða einkarekna fjölmiðla, heldur hvernig tryggja mætti styrk íslenskra fjölmiðla í heild í samkeppni við alþjóðlega miðla og tæknirisa.