02 september 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Staðfastur stuðningur við Úkraínu til umræðu á fundum utanríkisráðherra á Írlandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í óformlegum fundi utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) um málefni Úkraínu sem fram fór í Wicklow á Írlandi í dag. Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, var sérstakur gestur fundarins ásamt utanríkisráðherrum Noregs, Kanada, Bretlands, Sviss og Íslands. Ráðherrarnir sóttu einnig óformlegan kvöldverð utanríkisráðherra aðildarríkjanna í gær.
„Ég árétta fordæmingu Íslands á grimmilegum stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu sem hefur farið stigvaxandi undanfarnar vikur með árásum á almenna borgara. Það er þyngra en tárum taki að horfa upp á þær þjáningar sem Úkraínubúar nú upplifa,“ segir Þorgerður Katrín. „Það ríkir algjör samstaða í þessum ríkjahópi um mikilvægi þess að standa þétt við bakið á úkraínsku þjóðinni og að áframhaldandi stuðningur við Úkraínu varði öryggi allrar Evrópu.“
Samhliða fundunum ræddi utanríkisráðherra við fulltrúa ESB og aðildarríkjanna um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst síðastliðinn. „Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist um hvort við ættum að taka skref til að kanna hvort við gætum náð hagfelldum samningi um aðild að Evrópusambandinu. Niðurstaðan var að gera það ekki. Eftir sem áður munum við áfram eiga mjög náið samstarf við Evrópusambandið og aðildarríki þess og á það lagði ég ríka áherslu í samtölum mínum. Það á jafnt við um EES-samstarfið, sem hefur stuðlað að velsæld og tækifærum fyrir Íslendinga í á fjórða áratug, sem og annað samstarf okkar.“ segir Þorgerður Katrín.
Aðildarríki ESB skiptast á að fara með formennsku í ráði ESB (e. Council) á sex mánaða fresti. Formennskuríkið, sem að þessu sinni er Írland, stýrir fundum í ráði ESB og undirstofnunum þess. Auk formlegra funda ráðsins skipuleggur formennskuríkið einn óformlegan fund. Helen McEntee utanríkisráðherra var gestgjafi fundarins, en Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, stýrði fundi venju samkvæmt.