03 september 2026

/

Forsætisráðuneytið

Umboðsmaður barna afhenti forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025

{image.Description}

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, afhenti í vikunni Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra ársskýrslu embættisins fyrir árið 2025.

Í skýrslunni er farið yfir starfsemi umboðsmanns barna og helstu verkefni á árinu 2025 en árið markaði tímamót í sögu embættisins þegar 30 ár voru liðin frá því að það tók til starfa. Á þeim tíma hafa réttindi barna samkvæmt Barnasáttamála Sameinuðu þjóðanna styrkst á margvíslegan hátt og rödd barna fengið aukið vægi í íslensku samfélagi.

Þrátt fyrir þessar framfarir endurspegla verkefni umboðsmanns að enn megi gera betur við að hlusta á sjónarmið barna og stjórnvöld þurfi að taka markvissar á ýmsum réttindamálum þeirra.

Á árinu var á vegum embættisins ráðist í greiningu á stöðu réttinda bara og innleiðingu Barnasáttmálans í þjónustu við þau. Í skýrslu embættisins Barnvæn réttarvarsla, er í fyrsta sinn lagt heildstætt mat á hvernig íslenskt réttarkerfi og stjórnsýsla samræmast réttindum barna í ljósi alþjóðlegra skuldbindinga íslenskra stjórnvalda.

Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir ágæta lagalega umgjörð og almenna góða þekkingu á hugmyndafræði barnvænnar réttarvörslu innan réttarkerfisins og opinberrar stjórnsýslu megi víða enn grípa til ráðstafana til að tryggja barnvæna málsmeðferð. Að mati umboðsmanns er skýrslan mikilvægur grunnur að áframhaldandi samtali við stjórnvöld og stofnanir um nauðsynlegar úrbætur.

Á síðustu árum hefur þátttaka barna verið meðal helstu áherslumála embættisins. Fjórða barnaþingið var haldið á árinu og tóku um 150 börn víðs vegar að landinu þátt í því. Um niðurstöður þingsins má lesa í sérstakri skýrslu umboðsmanns. Barnaþingmenn töldu meðal annars brýnt að einkunnakerfi í skólum yrði endurskoðað þannig að það yrði skýrara og jafnara milli skóla, að börn hefðu gott aðgengi að íþróttum og tómstundum óháð efnahag, nytu frírra almenningssamgangna og að réttindi allra barna yrðu tryggð í íslensku samfélagi.