08 september 2026

/

150 milljónir til eflingar íslenskrar tungu

{image.Description}

Að gefnu tilefni vill menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið koma á framfæri eftirfarandi atriðum vegna bókasafnasjóðs rithöfunda.

Í fjárlagafrumvarpi kemur fram að sjóðurinn sé 142,3 milljónir árið 2027.   Í fjárlagafrumvarpinu er einnig gert ráð fyrir auknum fjármunum, 150 milljónum króna, til eflingar íslenskrar tungu, með sérstakri áherslu á börn og ungmenni.  Unnið er að útfærslu þeirra fjármuna, þar á meðal aðgerð sem snýr sérstaklega að höfundum barna- og ungmennabóka.

„Til stendur að nýta hluta þess fjármagns til að styrkja bókasafnasjóðinn en jafnframt eru fleiri leiðir til skoðunar til að efla lestraráhuga barna og ungmenna. Þar gegna rithöfundar mikilvægu hlutverki. Við stöndum frammi fyrir áskorunum þegar kemur að lestri barna og ungmenna og við þeim er hvorki til ein töfralausn né ein augljós aðgerð. Vanda þarf vel til verka og tryggja að fjármagnið nýtist sem best. Nú er unnið að tillögum um hvernig fjármunum í málaflokknum verði varið með sem árangursríkustum hætti. Tillögurnar verða mótaðar í samráði við hagaðila og kynntar þegar líður á haustið,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.