NOTE: This article is more than 5 years old.

03 apríl 1996

/

Blaðamannafundur rh. v/varnarsamstarfs Íslands/Bandaríkjanna


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________



Nr. 024



Utanríkisráðuneytið boðar til fundar með blaða- og fréttamönnum þriðjudaginn 9. apríl n.k. kl. 08:00 í Ráðherrabústaðnum
að Tjarnargötu 32.

Tilefnið er fundur utanríkisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar og aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Walter B.
Slocombe, um varnar-samstarf Íslands og Bandaríkjanna. Ráðherrarnir munu í lok fundarins undirrita bókun ríkjanna um
öryggis- og varnarmál og svara fyrirspurnum blaða- og fréttamanna.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 3. apríl 1996