NOTE: This article is more than 5 years old.

24 október 1996

/

Dagur Sameinuðu þjóðanna


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 079



Í dag, 24. október, er dagur Sameinuðu þjóðanna. Meðfylgjandi er yfirlýsing Boutros Boutros-Ghali aðalframkvæmdastjóra
í tilefni dagsins. Í yfirlýsingunni hvetur aðalframkvæmdastjórinn aðildarríkin til dáða og vekur athygli á, að samtökin séu
besti alþjóðlegi vettvangurinn til að fjalla um og leysa vandamál, sem eru ofviða einstökum aðildarríkjum eða ríkjahópum.



Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 24. október 1996