NOTE: This article is more than 5 years old.

14 mars 1997

/

Ástandið í Albaníu


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 018



Vegna ástands mála í Albaníu vill utanríkisráðuneytið vara eindregið við ferðum Íslendinga til og innan Albaníu. Þeir sem veitt geta upplýsingar um ferðir Íslendinga í Albaníu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við utanríkisráðuneytið.



Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 14. mars, 1997