NOTE: This article is more than 5 years old.

29 apríl 1997

/

Afhending trúnaðarbréfs hjá Evrópuráðinu


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr. 035

Í dag, 29. apríl, afhenti Sveinn Björnsson, sendiherra, Daniel Tarschys, aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins í Strasbourg, skilríki sín sem fastafulltrúi Íslands hjá stofnuninni.

Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 29. apríl 1997