NOTE: This article is more than 5 years old.

18 júní 1997

/

Opinber heimsókn Klaus Kinkel utanríkisráðh. Þýskalands


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________


Nr.060

Dr. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands og kona hans, frú Ursula Kinkel, koma í opinbera heimsókn til Íslands fimmtudaginn
19. júní. Ráðherrann á viðræður við Halldór Ásgrímsson utanríkis-ráðherra en hittir einnig að máli Davíð Oddsson, forsætisráðherra og forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson. Ráðherrahjónin halda af landi brott að kvöldi fimmtudags.