NOTE: This article is more than 5 years old.

29 júlí 1997

/

Lok síldarvertíðar 1997


Lok síldarvertíðar 1997


Ráðuneytið hefur ákveðið, að þeim síldarskipum sem ekki hafa lokið við að veiða það magn, sem þeim var heimilt að landa í tveimur veiðiferðum eftir 31. maí s.l., sé heimilt að skipta því magni á fleiri en tvær veiðiferðir.

Ákvörðun þessi er tekin að beiðni útgerðar- og vinnsluaðila í því skyni að stuðla að manneldisvinnslu á síld.



Sjávarútvegsráðuneytið
29. júlí 1997