NOTE: This article is more than 5 years old.

28 janúar 1998

/

Nr. 008, 28. janúar 1998: Kjör dómara við mannréttindadómstól Evrópuráðsins.


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
_____________

Nr. 8

Dr. Gaukur Jörundsson umboðsmaður Alþingis var í dag kjörinn dómari við nýjan mannréttindadómstól Evrópuráðsins í Strassborg. Mannréttindadómstóll Evrópuráðsins tekur til starfa 1. nóvember á þessu ári. Dómarar eru kjörnir til sex ára.

Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 28. janúar 1998