NOTE: This article is more than 5 years old.

03 mars 1998

/

Samræmd lokapróf verði lögð fyrir í fjórum námsgreinum í 10. bekk - mars 1998


Samræmd lokapróf verði lögð fyrir
í fjórum námsgreinum í 10. bekk


Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla


Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í fjórum námsgreinum í 10. bekk vorið 1999, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar og prófgreinar í 10. bekk grunnskóla vorið 1999 verða sem hér segir:

Íslenska miðvikudagur 21. apríl 1999
Danska föstudagur 23.apríl 1999
Stærðfræði mánudagur 26. apríl 1999
Enska þriðjudagur 27. apríl 1999
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sem sér um framkvæmd samræmdra prófa. Stofnunin sendir síðar nánari upplýsingar um prófkröfur og próffyrirkomulag.