NOTE: This article is more than 5 years old.

16 desember 1998

/

Skýrsla til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um sjúkrahúsmál

Þann 28. janúar 1998 skipaði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sérstakan faghóp um málefni sjúkrahúsa sem fékk það hlutverk m.a. að gera tillögur um úthlutun fjárveitinga til sjúkrahúsa, að undirbúa þjónustusamninga og yfirfara rekstraráætlanir heilbrigðisstofnana m.t.t. þess að rekstur yrði innan fjárlaga, leggja áherslu á hagkvæma verkaskiptingu sjúkrahúsanna og að vinna að undirbúningi klínískra leiðbeininga.