NOTE: This article is more than 5 years old.
02 febrúar 1999
/
Norræn ráðstefna um notkun upplýsingatækni í sérkennslu á Norðurlöndum - janúar 1999
Norræn ráðstefna um notkun upplýsingatækni í sérkennslu á Norðurlöndum
Menntamálaráðuneytið vekur athygli á norrænni ráðstefnu um notkun upplýsingatækni í sérkennslu á Norðurlöndum.
Ráðstefnan verður haldin í Helsingborg í Svíþjóð dagana 25.-28. maí nk. og er einkum ætluð stefnumótandi aðilum, stjórnendum og kennurum.
Meðfylgjandi er kynningarbæklingur um ráðstefnuna.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda er frá hverju landi og er Íslendingum heimilt að senda 10 þátttakendur.
Þeir sem hafa áhuga að sækja þessa ráðstefnu eru vinsamlegast beðnir að snúa sér beint til þeirra sem halda ráðstefnuna. Ráðuneytið hefur ekki milligöngu um val þátttakenda og veitir ekki fjárhagslegan stuðning til þessa verkefnis.
(Janúar 1999)