NOTE: This article is more than 5 years old.
29 september 2000
/
Nr. 069, 29. september 2000.Nýafstaðnar forsetakosningar í Júgóslavíu.
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 069Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, fagnar niðurstöðum nýafstaðinna forsetakosninga í Júgóslavíu. Jafnframt skorar hann á sitjandi forseta að láta af ágreiningi um niðurstöðuna og viðurkenna ótvíræð úrslit kosninganna og þar með auðvelda nýjum lýðræðislega kjörnum forseta að taka við embætti.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 29. september 2000.