NOTE: This article is more than 5 years old.

04 apríl 2001

/

Aukaársfundur NAFO mars 2001


Fréttatilkynning


Dagana 27. - 30. mars sl. var haldinn í Kaupmannahöfn aukaársfundur Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO.

Á fundinum voru ræddar mögulegar leiðir til að stjórna rækjuveiðum á Flæmingjagrunni og jafnframt hvernig standa megi að því að taka upp kvótakerfi í stað sóknarstýringar í veiðunum. Auk þess var fjallað um stjórnun veiða á úthafskarfa á samningssvæði NAFO.

Ísland hefur frá því að NAFO samþykkti að taka upp sóknarstýringu til stjórnunar á rækjuveiðum á Flæmingjagrunni árið 1995 mótmælt því fyrirkomulagi. Mótmæli þessi voru tilkomin vegna efasemda íslenskra stjórnvalda um að hægt væri að stjórna veiðunum með sóknarstýringu en Ísland hefur frá upphafi lagt til að veiðunum væri stjórnað með aflamarki.
Á fundinum kom fram að sóknarstýringin hefur ekki skilað þeim árangri sem NAFO hafði vonast eftir. Þá kom einnig skýrt fram á fundinum eindreginn stuðningur mikils meirihluta aðildarríkja NAFO við það sjónarmið Íslands að veiðunum sé stjórnað með aflamarkskerfi. Þrátt fyrir þennan stuðning náðist ekki samkomulag um skiptingu heildarafla milli aðildarríkja NAFO á þessum fundi. Þar sem samkomulag náðist ekki um skiptinguna, ákváðu samtökin að fækka sóknardögum ársins 2001 um 15% til að draga úr þeirri ofveiði sem sóknarmarkskerfið hefur haft í för með sér. Ísland ítrekaði mótmæli sín við sóknarmarkskerfið og mun áfram stjórna veiðunum einhliða með aflamarki.

Á fundi í Reykjavík 12.-13. mars síðastliðinn fjölluðu NAFO og NEAFC (Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndin) sameiginlega um þau stjórnunarlegu vandamál sem fylgdu því að úthafskarfi, sem NEAFC hefur hingað til stjórnað veiðum á, væri nú veiðanlegur á stjórnsvæðum beggja stofnananna. Samkomulag um fyrirkomulag stjórnunar á svæðunum náðist ekki og var því ákveðið að fresta frekari umræðum fram að aukaársfundinum sem nú var haldinn í Kaupmannahöfn. Þar náðist samkomulag um að samskonar stjórnunarreglur og gilda á umráðasvæði NEAFC skyldu gilda á NAFO svæðinu, að viðbættum þeim almennu reglum NAFO að möskvastærð þeirra skipa sem veiða á NAFO svæðinu yrði 130 mm (í stað 100 mm á NEAFC svæðinu) og að veiðieftirlitsmenn yrðu um borð í öllum skipum sem þar stunduðu veiðar. Með samkomulaginu er komið í veg fyrir stjórnlausar karfaveiðar á NAFO svæðinu sem hefðu grafið undan virkni stjórnunarráðstafana NEAFC.

Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kolbeinn Árnason, lögfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu.

Sjávarútvegsráðuneytið
4. apríl 2001