NOTE: This article is more than 5 years old.
18 maí 2001
/
Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar
Skýrslur á sviði fjölskyldumála
Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar var haldinn þann 15. maí sl. en þetta var í 8. skipti sem Sameinuðu þjóðirnar tileinka þessum degi málefnum hennar. Af því tilefni voru gefnar út tvær skýrslur á sviði fjölskyldumála. Önnur þeirra nefnist Könnun fjölskylduráðs á viðhorfum íslenskra sveitarfélaga til málefna fjölskyldunnar þar sem fram koma niðurstöður úr könnun fjölskylduráðs sem gerð var meðal sveitarstjórna á árinu 1999. Hin skýrslan nefnist Samantekt fjölskylduráðs um málefni fjölskyldunnar en markmið hennar er að veita heildarsýn yfir þau málefni sem varða hagsmuni fjölskyldunnar og stjórnvöld eru að vinna að.
|
Samantekt fjölskylduráðs um málefni fjölskyldunnar Fram koma niðurstöður úr könnun fjölskylduráðs sem gerð var meðal sveitarstjórna á árinu 1999. |
|
|
Könnun fjölskylduráðs á viðhorfum íslenskra sveitarfélaga til málefna fjölskyldunnar. Markmið skýrslunnar er að veita heildarsýn yfir þau málefni sem varða hagsmuni fjölskyldunnar. |
|