NOTE: This article is more than 5 years old.

23 maí 2001

/

Nr. 046, 23. maí 2001 Formleg opnun sendiráðs Íslands í Ottawa


FRÉTTATILKYNNING

frá utanríkisráðuneytinu

________




Nr. 46


Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, opnaði formlega í gær, 22. maí, skrifstofur hins nýja sendiráðs Íslands í Kanada. Meðal viðstaddra var John Manley, utanríkisráðherra Kanada. Áður höfðu ráðherrarnir átt með sér fund þar sem rædd voru samskipti Íslands og Kanada og alþjóðamál.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 23. mai 2001.