NOTE: This article is more than 5 years old.

06 júní 2001

/

Evrópskur tungumáladagur 26. september 2001

Til grunn- og framhaldsskóla


Evrópskur tungumáladagur 26. september 2001

Árið 2001 er Evrópskt tungumálaár og er Ísland eitt 45 þátttökulanda. Í tilefni ársins er efnt til ýmissa aðgerða hér á landi.

Ráðuneytið vill með bréfi þessu hvetja skóla til að nýta tungumálaárið til að vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu. Sérstaklega er hvatt til þess að skólar haldi með einhverjum hætti upp á Evrópskan tungumáladag sem verður í öllum þátttökulöndunum þann 26. september nk. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um hvað hægt sé að gera þann dag, s.s. virkja nýbúa, erlenda nemendur og nemendur sem dvalist hafa langdvölum erlendis til að kynna menningu er tengist viðkomandi tungumálum, fá skólakór til að syngja lög með erlendum textum og útbúa ýmis konar efni til kynningar og hvatningar.

Æskilegt er að ráðuneytinu berist upplýsingar frá skólum um fyrirhugaðar aðgerðir á evrópska tungumáladeginum og á árinu almennt, þar sem ætlunin er að setja þær upplýsingar sem hugmyndabanka inn á heimasíðu ráðuneytisins. Upplýsingarnar ber að senda Jórunni Tómasdóttur, verkefnisstjóra tungumálaársins ([email protected]).

Bent er á að á heimasíðu menntamálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is eru ýmsar upplýsingar um tungumálaárið, þar á meðal dagskrá. Á heimasíðu ráðuneytisins er einnig krækja í evrópska heimasíðu tungumálaársins www.eurolang2001.org, þar sem m.a. má finna áhugavert efni fyrir kennara og nemendur.

Menntamálaráðuneytið væntir þess að Evrópskt tungumálaár 2001 hafi jákvæð áhrif á tungumálanám og -kennslu í skólum og verði einstaklingum hvatning til símenntunar í tungumálanámi.

(apríl 2001)