NOTE: This article is more than 5 years old.

06 júní 2001

/

Tillögur að nýjum námskrám eða breytingar á námskrám framhaldsskóla

Til
formanna starfsgreinaráða, og
skólameistara framhaldsskóla



    Breytingar á námskrám framhaldsskóla
Að gefnu tilefni og vegna breytinga á námskrám fyrir einstakar námsbrautir setur ráðuneytið eftirfarandi reglu:

Tillögur að nýjum námskrám eða breytingum á námskrám skulu liggja fyrir í endanlegri mynd ekki síðar en fyrir lok janúar það ár, sem þær eiga að koma til framkvæmda. Sama gildir um óskir skóla um að hefja starfrækslu námsbrauta sem þeir hafa ekki starfrækt áður. Berist tillögur eða óskir eftir lok janúar, verður við það miðað, að þær komi til framkvæmda haustið ári síðar, enda fallist ráðuneytið á efni þeirra.

Sé um það að ræða, að verið sé að færa gildandi námskrá til betri vegar með einfaldri leiðréttingu eða lagfæringu án þess að áhrif hafi á skipulag kennslu eða lokamarkmið náms, gilda þessi tímamörk ekki.

Ráðuneytið telur að, nauðsynlegt sé að hafa skýrar reglur um þetta efni til að auðvelda allt skipulag skólastarfs og kynningu á því gagnvart nemendum.




(maí 2001)