NOTE: This article is more than 5 years old.
08 ágúst 2001
/
Úttekt á ástandi á útihátíðum
Úttekt á ástandi á útihátíðum, vinnuhópur skipaður
Fréttatilkynning
Nr. 26/ 2001
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra hefur á undanförnum tveimur dögum átt fundi með fulltrúum lögregluyfirvalda, landlækni, og fulltrúum frá neyðarmóttöku og Stígamótum, til að fara yfir það ástand sem skapaðist á útihátíðum verslunarmannahelgarinnar. Dómsmálaráðherra hefur í framhaldinu ákveðið að koma á faglegum starfshópi sem ætlað er að fara yfir gildandi lög og reglur er snerta skemmtanahald á útihátíðum. Er hópnum ætlað að samræma enn frekar en nú er samstarf þeirra aðila sem koma að lög- og heilsugæslu á slíkum hátíðum. Formaður starfshópsins verður Jón Þór Ólason lögfræðingur úr dómsmálaráðuneytinu en ennfremur munu fulltrúar frá ríkislögreglustjóra, landlæknisembættinu, Stígamótum, Neyðarmóttöku vegna nauðgana, Sýslumannafélagi Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga eiga sæti í starfshópnum.
Þá hefur dómsmálaráðherra ennfremur óskað eftir því við embætti ríkislögreglustjóra að gerð verði ítarleg úttekt á valdheimildum lögreglu á útihátíðum og hvort þörf sé á breytingum í þeim efnum.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
8. ágúst 2001.