NOTE: This article is more than 5 years old.
26 mars 2002
/
Forsætisráðherra til Víetnam
Frétt nr.: 10/2002
Opinber heimsókn forsætisráðherra til Víetnam
Með í för verður viðskiptasendinefnd undir forystu Útflutningsráðs Íslands, sem í verða fulltrúar um 15 fyrirtækja sem ýmist hyggja á eða stunda viðskipti við Víetnam. Mun viðskiptasendinefndin sitja sérstakt íslenskt-víetnamskt viðskiptaþing og eiga fundi með víetnömskum fyrirtækjum. Í heimsókninni verður undirritaður tvísköttunarsamningur milli ríkjanna og sérstök yfirlýsing um að hvetja til og greiða fyrir auknum viðskiptum þeirra í milli.
Forsætisráðherra mun heimsækja höfuðborgina Hanoi og Ho Chi Minh borg, og m.a. eiga viðræður við forsætisráðherra landsins, forseta og forseta þings Víetnam.
Með forsætisráðherra í för verða einkona hans, embættismenn í forsætisráðuneyti og fulltrúi viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins.
26. mars 2002