NOTE: This article is more than 5 years old.

30 apríl 2002

/

Nýsamþykkt lög um samgönguáætlun

Alþingi samþykkti í gær frumvarp samgönguráðherra til laga um samgönguáætlun.

Markmið laganna er að samræma áætlanagerð við framkvæmdir og rekstur í samgöngumálum og skal það gert með samgönguáætlun til tólf ára.

Samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að samgönguráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun sem tekur til fjáröflunar og útgjalda til flugmála, vegamála og siglinga mála, þ.m.t. hafnamála og sjóvarna, og rekstrar stofnana.

Lög um samgönguáætlun