NOTE: This article is more than 5 years old.
11 október 2002
/
Greinargerð Ríkisendurskoðunar
Frétt nr.: 41/2002
Reykjavík, 11. október 2002
Greinargerð Ríkisendurskoðunar um sölu Landsbankans
Meginniðurstaða Ríkisendurskoðunar er að við val á áhugaverðum kaupanda á hlut ríkisins í bankanum hafi verið farið eftir verklagsreglum sem gilda um sölu ríkisfyrirtækja og að sú niðurstaða að ganga til beinna viðræðna við Samson ehf. sé sannfærandi og eðlileg. Niðurstaða stofnunarinnar er að þessu leyti ótvíræð og skýr. Í skýrslu sinni bendir stofnunin á nokkur atriði í söluferlinu sem hún telur að betur hefðu mátt fara. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun taka tillit til þessara ábendinga. Gerðar eru athugasemdir við fyrirkomulag við birtingu ákvarðana um frávik frá verklagsreglunum. Ráðuneytið mun bregðast við þessu með því að hefja nú þegar yfirferð á reglunum með það í huga hvort ástæða sé til að breyta þeim eða skerpa með öðrum hætti á framkvæmd þeirra.