NOTE: This article is more than 5 years old.

13 nóvember 2002

/

Ráðstefna um íslenska heilbrigðisnetið


Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
13. nóvember 2002


Ráðstefna um íslenska heilbrigðisnetið

Fimmtudaginn 14. nóvember, kl. 13.00 - 17.00 heldur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið ráðstefnu um Íslenska heilbrigðisnetið í Salnum í Kópavogi. Á ráðstefnunni verður fjallað um hvað heilbrigðisnetið er, öryggiskröfur þess, hvaða möguleikar opnast og hvaða áhrif það mun hafa á störf heilbrigðisstarfsfólks. Íslenska heilbrigðisnetið er samskiptanet heilbrigðiskerfisins fyrir allar tegundir rafrænna upplýsinga þar sem öryggi upplýsinganna er tryggt með ákveðnum öryggiskröfum. Samskipti um heilbrigðiskerfið munu ná til allra tegunda upplýsinga í samræmi við öryggisstefnu heilbrigðisnetsins hvort sem um ræðir upplýsingar um einstaka skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins eða upplýsingar um starfsemi einstakra starfseininga eða stofnana heilbrigðiskerfisins. Hér að neðan er dagskrá ráðstefnunnar.