NOTE: This article is more than 5 years old.
26 nóvember 2002
/
Aðstæður barna hjá dagmæðrum
Í skýrslunni er að finna niðurstöður könnunar sem ráðuneytið lét gera í öllum sveitarfélögum með 1.000 íbúa og fleiri og einnig á tveimur svæðum þar sem sveitarfélög hafa sameinast um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Skýrslan hefur meðal annars að geyma upplýsingar um heildarfjölda dagmæðra og fjölda, aldur og dvalartíma barnanna. Einnig er þar að finna upplýsingar um heimili dagmæðranna, aldur þeirra og starfsaldur og kannað var hvernig leyfisveitingum, eftirliti og stuðningi af hálfu sveitarfélaga er háttað.
Könnunin var framkvæmd í desember 2001 og voru fyrstu niðurstöður kynntar á síðastliðnu vori, en nú hefur heildarskýrsla um þetta efni verið gefin út.
Aðstæður barna hjá dagmæðrum (PDF, 140 KB)