NOTE: This article is more than 5 years old.

12 desember 2002

/

Sjávarútvegsráðherra í viðtali hjá CNN International


Staða íslensks sjávarútvegs vekur athygli hjá CNN sjónvarpsstöðinni
Sjávarútvegsráðherra í viðtali hjá CNN International
Desember 2002


Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN fjallaði í gær um slæma stöðu sjávarútvegs í Evrópusambandslöndunum, en eins fram hefur komið í fréttum hefur framkvæmdastjórn ESB lagt til að þorskkvótinn verði skertur um 79%. Í umfjöllun sinni lagði fréttaskýrandinn áherslu á að þessi staða væri þó ekki algild í Evrópu þar sem Ísland væri undantekning. Í kjölfarið tók sjónvarpsstöðin viðtal við sjávarútvegsráðherra Íslands, Árna M. Mathiesen þar sem hann var beðinn um að skýra hvers vegna Íslendingum hefði vegnað eins vel með sjávarútveginn og raun bæri vitni. Árni lagði áherslu á að sjávarútvegurinn hér á landi byggi við stjórnkerfi sem grundvallast á hagnýtingu líffræðilegrar þekkingar en lyti jafnframt lögmálum markaðarins. Sjávarútvegsráðherra lagði áherslu á ef fiskveiðistjórnunarkerfi ættu almennt séð að standa undir nafni, yrðu fjórir megin þættir að koma til.

Þeir væru:
Í fyrsta lagi yrði eftirlit með lönduðum afla að vera bæði skilvirkt og nákvæmt.
Í öðru lagi yrðu fiskveiðiréttindin að vera skýrt skilgreind.
Í þriðja lagi þyrfti kerfið að grundvallast á traustri líffræðilegri þekkingu.
Í fjórða lagi væri nauðsynlegt að líta á fiskveiðiauðlindina sem eitt vistkerfi, því veiði úr einum stofni hefði áhrif á viðgang annarra.

Samkvæmt upplýsingum CNN í Washington horfa á milli 900-1000 milljónir manna á CNN International í 210 löndum.

Mynd Sjávarútvegsráðherra í viðtali hjá CNN International