NOTE: This article is more than 5 years old.

02 janúar 2003

/

Kynning útboðs á rekstri Heilsugæslustöðvarinnar Salahverfi


02. janúar 2003



Kynning útboðs á rekstri Heilsugæslustöðvarinnar Salahverfi

Föstudaginn 10. janúar verður kynnt útboðið á rekstri Heilsugæslustöðvarinnar Salahverfi. Fundurinn sem hefst klukkan 15.00 verður í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni), fjórðu hæð – fundarsal 2. Á fundinum munu fulltrúar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Heilsugæslunnar kynna markmið og forsendur útboðsins og svara almennum spurningum þar að lútandi. Væntanlegir bjóðendur og aðrir þeir sem áhuga hafa á útboðinu í rekstur Heilsugæslustöðvarinnar Salahverfi eru velkomnir á fundinn.