NOTE: This article is more than 5 years old.

10 mars 2003

/

Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2003

Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla


Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2003
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2003, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar verða sem hér segir:

Stærðfræði í 4. og 7. bekk. Fimmtudagur, 16. október 2003kl. 9.00-12.00
Íslenska í 4. og 7. bekk.Föstudagur, 17. október 2003kl. 9.00-12.00

Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.

(Mars 2003)